Skráning blóðflokka í ökuskírteini

10. fundur
Mánudaginn 11. október 1993, kl. 16:23:36 (141)


[16:23]
     Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. svör hans og vil beina því til hans að hann beiti sér fyrir því að þessar viðræður við heilbrrn. eigi sér stað. Ég hef kannað þetta aðeins og rætt við heilbrigðisstéttir hvort það sé ekki rétt að hafa þennan háttinn á, að blóðflokkur sé tilgreindur í ökuskírteini. Enn þá hefur það ekki komið fram í þeim viðræðum að þeir hafi haft á móti því, þvert á móti hvatt til þess

að koma því þannig fyrir og þess vegna vil ég beina því til hæstv. dómsmrh. að hann beiti sér fyrir því að taka upp viðræður við heilbrrh.