Fjárlög 1994

11. fundur
Þriðjudaginn 12. október 1993, kl. 16:40:34 (192)


[16:40]
     Sigbjörn Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er mér sönn ánægja að vitna í Dag og öll þau blöð sem mæla af skynsemi og taka undir skynsamleg sjónarmið sem sett eru fram. Ég veit og efast ekki um að hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson mun gera slíkt hið sama.