Fjárlög 1994

11. fundur
Þriðjudaginn 12. október 1993, kl. 19:16:34 (220)

[19:16]
     Sigbjörn Gunnarsson (andsvar) :
    Frú forseti. Varðandi þessi efni þá þiggur fjárln. allar ábendingar og þær eru af hinu góða. Ég hygg að að þessu sinni verði haft svipað verklag og verið hefur undanfarin ár. En ég ítreka það sem ég sagði hér áðan að ég tel ástæðu til að huga rækilega að breytingum.