[13:59]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegi forseti. Þakka skyldi það að vextir séu að lækka núna frá þeim tæpu 20% sem þeir fóru upp í á miðju sumri. En ég vil nú ekki beygja mig og bugta í þakklæti fyrir það eins og hæstv. ráðherra gerir hér og nú þannig að ég ítreka það enn að ekkert hefur enn sést til aðgerða ríkisstjórnarinnar til þess að lækka vexti. Það mun ekki standa á Alþingi, það get ég fullyrt, að taka á því með ríkisstjórninni ef hún nú mannar sig til slíkra aðgerða.