Efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga

13. fundur
Fimmtudaginn 14. október 1993, kl. 12:21:57 (283)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti hafði reiknað með því að þessari umræðu væri senn lokið þar sem nú er einungis forsrh. á mælendaskrá og hafði hugsað sér að meta það þegar forsrh. hefði talað hvort það væri ástæða til að gera hlé á fundinum. ( JÁ: Það er ekki hægt að gera hlé þegar forsrh. hefur talað.) ( Gripið fram í: Það er óvirðing).