Efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga

13. fundur
Fimmtudaginn 14. október 1993, kl. 12:22:09 (284)


[12:22]
     Steingrímur J. Sigfússon (um fundarstjórn) :
    Virðulegur forseti. Ég geri engar athugasemdir við þessa tilhögun fundarstjórnar. En ég vil þó vara forseta við þeirri bjartsýni að ræða forsrh. veki engin tilefni til frekari umræðna. Ég hygg að hér séu allmargir sem hafa einmitt beðið eftir því að hæstv. forsrh. talaði og svaraði spurningum og ætli svo að sjá til hvort þeir sjái ástæðu til frekari umræðna. Þannig að mér þykir ekki ólíklegt að þannig fari að það væri þá rétt að gefa hlé eftir að forsrh. hefur talað.