[14:34]
Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Því síður sagði ég í máli mínu að þingmenn hefðu barist gegn launahækkunum alþingismanna af lágkúrulegum hvötum. ( TIO: Af ótta við kjósendur.) Það fer hins vegar ekkert á milli mála að alþingismenn og hið háa Alþingi hefur ekki verið rismikið þegar tal berst að kjörum þingmanna. Og ég hika ekkert við það þó ég leyfi mér að fullyrða að menn hafa að sjálfsögðu ekki þorað að tala um kjör alþingismanna af ótta við kjósendur. Auðvitað er það ástæðan. En ég var ekki beinlínis að beina því til hv. 5. þm. Norðurl. e. sérstaklega. Ef hann er óttalaus við kjósendur þá ber að fagna því. Þess vegna held ég að hann ætti að ganga í lið með þeim sem reisa vilja veg Alþingis, sjá Alþingi þar sem menn þurfa ekki að stunda önnur störf en geta einbeitt sér að þeim störfum sem þeir eru kjörnir til og það Alþingi vil ég sjá. Það er nefnilega ekkert einkamál okkar hérna hvort við höfum tíma til að vinna okkar störf, það er mál allrar þjóðarinnar og þjóðin á að sjá um að alþingismenn geti einbeitt sér að því sem þeir eru kjörnir til. ( TIO: Alþingismenn þurfa ekki að stunda önnur störf.)