Þingfararkaup alþingismanna

13. fundur
Fimmtudaginn 14. október 1993, kl. 15:12:38 (314)


[15:12]
     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins taka það fram að mér finnst full ástæða til að afgreiða þetta frv. sem hér liggur frammi og tel að það sé hægt að afgreiða það út úr nefndinni þó að því starfi sé ekki lokið sem ég vona að muni eiga sér stað almennt um þingfararkaup þannig að ef nefndin tæki sig til og semdi nýtt frv. um þingfararkaup almennt, þá vil ég taka það fram að mér finnst ástæðulaust að þetta frv. þurfi að bíða eftir því. Þetta frv. fjallar um ákveðið vandamál sem þarf að skýra og ég vil bara að flm. viti það að ég get alveg stutt það frv. og treysti mér til að stuðla að afgreiðslu þess þó að heildarendurskoðun sé ekki lokið, en ég held jafnframt að hún sé mjög svo nauðsynleg.