[17:23]
Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Kjarnaatriðið í því hvort þessi umræða hefur orðið til gagns er hvort hæstv. dómsmrh. ætlar að fresta því að gefa út reglugerðina. Það er höfuðatriði þessa máls. Hæstv. utanrrh. lýsti því yfir hér áðan að hann væri þakklátur hæstv. dómsmrh. fyrir það að hafa nú ákveðið að fresta útgáfu reglugerðarinnar. Þrátt fyrir ítrekaðar spurningar sagði hæstv. dómsmrh. ekki orð um það í sinni seinni ræðu hvort hann ætlaði að fresta útgáfu reglugerðarinnar eða ekki. Þannig að þrátt fyrir langar útskýringar ráðherrans hér áðan þá sagði hann ekki orð um kjarna málsins. Ef hann gefur reglugerðina út þá er nánast tilgangslaust að hvetja menn til þess að setjast að viðræðuborði og sáttaborði. Hæstv. dómsmrh. hefur þess vegna í hendi sér hvort sáttaviðræður verða árangursríkar eða ekki. Ég vil fordæma það mjög harðlega að hæstv. dómsmrh. skuli ekki svara því hér á þinginu nú hvort það sé rétt að hann ætli að fresta útgáfu reglugerðarinnar.
Þetta mál er allt of brýnt mál fyrir þúsundir sjálfboðaliða í Slysavarnafélagi Íslands, Rauða krossinum, SÁÁ og Landsbjörg til þess að blandast inn í valdatogstreitu hæstv. ráðherra, Jóns Baldvins Hannibalssonar og Þorsteins Pálssonar. Þeir hafa ekki heimild til þess að blanda þessu máli inn í sína valdatogstreitu. Þess vegna er það brýnt að hæstv. dómsmrh. upplýsi það hér: Er það rétt sem hæstv. utanrrh. sagði áðan að því verði frestað að gefa út reglugerðina? Ef svo er þá ber að fagna því, þá hefur þessi umræða orðið til gagns og tími skapast til þess að reyna að ná sáttum í málinu. ( Umhvrh.: Sem fyrr reiðir þú þig á Alþfl.) Það er greinilegt á ummælum og frammíkalli hæstv. umhvrh. að ráðherrar Alþfl. virðast vera í einhvers konar pólitískum hráskinnsleik í þessu máli. Þetta mál er allt of mikilvægt til þess að þeir geti leyft sér það. Ég skora því á hæstv. dómsmrh. að með einum eða öðrum hætti komi hann því á framfæri hér hvort hann er reiðubúinn að fresta útgáfu reglugerðarinnar og þó hann sé búinn að tala tvisvar þá er öruggt að hæstv. menntmrh. tekur að sér að koma þeim skilaboðum hér upp í ræðustólinn þannig að
dómsmrh. hefur möguleika til þess að koma þeim skilaboðum á framfæri við þingið.
Ég vil svo þakka hæstv. menntmrh. fyrir hans svör. Ég vil þakka honum fyrir það að hafa upplýst það hér að hann hafi ekki beitt dómsmrh. þrýstingi í þessu máli út frá fjárhagslegum hagsmunum háskólans. Ég vil einnig þakka honum fyrir það að hafa tekið vel í það að samningur háskólahappdrættisins við hinn erlenda aðila verði lagður á borðið svo hægt sé að eyða öllum grun um það hvað í honum felst því hér á í hlut opinbert fyrirtæki, Háskóli Íslands. Og í þriðja lagi vil ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir það að hafa lýst yfir efnislegum stuðningi við það frv. sem Guðrún Helgadóttir og fleiri hafa flutt hér um að fella leyfisgjaldið niður. Ég tel að slík ákvörðun þingsins væri veigamikið skref til þess að ná sáttum í málinu.
Ég leyfi mér þess vegna að túlka það hér að það sé þingmeirihluti fyrir því að fella niður einkaleyfisgjald háskólans, það er niðurstaða sem háskólinn ætti að meta mikils og þess vegna tel ég í ljósi þess að það liggur nú fyrir að Háskóli Íslands eigi að stíga fyrsta skrefið til sátta. Nú hefur það gerst í dag að það virðist vera þingmeirihluti fyrir að fella einkaleyfisgjaldið niður sem háskólinn hefur orðið að greiða og ég segi það sem gamall starfsmaður þeirrar virðulegu stofnunar að í ljósi þess á Háskóli Íslands nú að stíga fyrsta skrefið til sátta.