[16:59]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það kann að vera þannig að góðir vegir og góðar samgöngur geti örvað útflutning landsmanna. Ég hygg að ástæðan fyrir því að menn sækjast eftir því að hafa samgöngur góðar hér á landi sé einmitt sú að við teljum okkur vera að styrkja atvinnulífið og byggðirnar með þeim hætti.
Varðandi þessar 50 millj. sem hér er verið að ræða um þá fannst okkur í ríkisstjórninni og meiri hlutanum eðlilegt að gripið væri til þess nú þegar að rannsaka botninn í Hvalfirði. Það hefði verið gert annaðhvort með lánveitingu til Spalar, eins og hér er verið að fara fram á, eða, sem mörgum þótti eðlilegra, að Vegagerð ríkisins greiddi þetta fé sjálf og þá hefði komið upp sú staða að það hefði verið beðið um aukafjárveitingu í haust. Niðurstaðan af þessum rannsóknum er síðan væntanlega ráðandi um það hvort fyrirtækið, sem er einkafyrirtæki og starfar án ríkisábyrgðar, mun fara í það að framkvæma það sem að er stefnt og bora undir Hvalfjörðinn. Hér er því ekkert um annað að tefla en þessar 50 millj. sem ég hygg að Vegagerðin hefði hvort sem er þurft að taka að láni vegna þess að öllum er ljóst að það þarf að taka upp veginn í kringum Hvalfjörð ef ekki verða gerð jarðgöng.