[17:24]
Jón Helgason :
Hæstv. forseti. Þegar ég bað um orðið þá var það til þess að þakka hæstv. fjmrh. fyrir þá yfirlýsingu að nú stæðu yfir viðræður milli samgrn. og fjmrn. um málefni ferðaþjónustunnar og hann vonaðist til þess að sú niðurstaða mundi veita þessari atvinnugrein ánægju. Mér fannst þetta vera ákaflega mikilvæg yfirlýsing, sérstaklega af því að þá rifjaðist upp fyrir mér yfirlýsing sem hæstv. samgrh. gaf rétt eftir áramótin síðustu. Þá skrapp hann til Egyptalands og var þar kynnt það að ferðaþjónusta í Egyptalandi væri ákaflega mikilvæg fyrir það land og þeir gerðu mjög margt til þess að styðja hana og væru með til athugunar að lækka gjöld á henni. Jafnframt sagði hann þá í fréttaviðtali þaðan: ,,Það gengur sko ekki að leggja gjöld á íslenska ferðaþjónustu.`` Þetta hlýtur því að vera það sem samgrn. er að leggja áherslu á núna. Ferðaþjónustan getur náttúrlega ekki orðið ánægð ef þarna verður gert það sem hæstv. samgrh. telur algjöra fjarstæðu eins og að leggja gjöldin á. Þetta var að vísu rétt eftir að lögin höfðu verið samþykkt, en það gaf til kynna að þau yrðu tekin til endurskoðunar, enda minnir mig hann segja í þessu viðtali þegar hann var spurður um það, að allt mætti endurskoða.
En mér fannst svo í andsvari hæstv. fjmrh. að hann drægi nokkuð í land og sagði að nú hefði ferðaþjónustan það orðið svo gott af því að það væri búið að lagfæra gengið og minntist einu sinni enn á tryggingagjaldið sem ætti að lækka. En tryggingagjaldið var almenn aðgerð sem allir atvinnuvegir áttu að njóta og þá er það hart ef það á sérstaklega að taka þann ávinning af ferðaþjónustunni með nýrri skattlagningu. En í þeirri hörðu samkeppni sem er um ferðaþjónustuna eða að fá hingað útlendinga, þá megum við ekki við slíkum álögum. Ég nefndi það í 1. umr. um frv. til fjárlaga að Svíar gerðu þetta fyrir fáum árum og þá brá svo við að það varð að mig minnir 30% samdráttur í komu erlendra ferðamanna til Svíþjóðar. Slíkt ætti að vera nægileg aðvörun fyrir íslensk stjórnvöld til að falla ekki í sömu gryfju. Ég held að flestir sem til þekkja séu sannfærðir um að það fjármagn sem notað er til að styðja íslenska ferðaþjónustu, og þar með að draga úr skattheimtu, skilar sér margfaldlega til baka því að þar séu möguleikarnir fyrir hendi fyrir okkur.