Lánsfjárlög 1993

16. fundur
Þriðjudaginn 19. október 1993, kl. 17:53:28 (439)


[17:53]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að lengja þessa umræðu en ég fagna því svo sannarlega að hv. þm. Stefán Guðmundsson skuli vera einlægur stuðningsmaður þessarar framkvæmdar og ég hef ekki sagt úr ræðustóli að svo væri ekki. ( StG: Jú.)