Ríkisreikningur 1991

16. fundur
Þriðjudaginn 19. október 1993, kl. 18:57:16 (456)


[18:57]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hæstv. fjmrh. segir að það þurfi að ljúka þessu máli og ekki megi draga það of lengi. Það var líka sagt sl. vor þegar við vorum að fjalla um öll þessi mál að mjög nauðsynlegt væri að afgreiða það fyrir þinglok sem var í byrjun maí. Síðan eru liðnir þó nokkrir mánuðir og það líður senn að því að ríkisreikningsnefnd skili af sér álitinu. Eins og ég sagði áðan þá sé ég ekki að þetta sé svo brýnt nú frekar en það var í maí sl. að því var ekki lokið þá að það megi ekki dragast þar til þetta álit liggur fyrir.