[17:09]
Ólafur Þ. Þórðarson (um fundarstjórn) :
Herra forseti. Mér var ekki ljóst að kettir hefðu seturétt hér þannig að ég tek það ekki til greina sem skýringu. Í annan stað hef ég ekki gert athugasemd við það að menn gangi um salinn, en að iðka hér skokk fram og til baka um salinn finnst mér óviðeigandi.