Fjáraukalög 1993

23. fundur
Þriðjudaginn 26. október 1993, kl. 14:45:52 (650)


[14:45]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég lít svo á að með þessari yfirlýsingu hæstv. fjmrh. hafi það verið staðfest að þessir fjármunir muni færast á milli ára og er það nokkurs virði að fá þá yfirlýsingu og það eyðir þá öllum vafa um vilja ráðherra í því efni.