[15:57]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Vegna orða hv. 2. þm. Vestf. um það að menn hafi ekki skoðað nægilega vel hvort það ætti að byggja brú yfir Hvalfjörð þá vil ég segja að ég var og er einn af þeim sem hafa talið mjög skynsamlegt að skoða það vel. Mér var sagt á fundi með þeim sem hafa staðið að þessum athugunum að sú hugmynd hafi verið skoðuð vel og borin saman við aðra kosti og niðurstaðan varð sú að það var verulegur kostnaðarmunur á því að gera þessi göng eða gera brú. Hins vegar á sú hugmynd þingmannsins að brúa yfir Þyrilsnesið ekkert skylt við þessa lausn sem nú er verið að tala um þarna fyrir Hvalfjörðinn og er miklu minni stytting á leiðinni fyrir Hvalfjörð heldur en þessi jarðgangagerð.
Með það hvort þarna verði mikið vatn --- ég er ekkert hissa á því þótt Vestfirðingar séu kvekktir á þessum mikla vatnsaga sem þarna er í göngunum hjá þeim. Rannsóknir hafa sýnt að það er ekki mikil hætta á vatni að minnsta kosti ofan frá í þessi göng. Hitt vita menn ekki hvort það gæti komið neðanfrá og verið kannski í heitara lagi. Það hefur kannski ekki verið rannsakað sem skyldi. Það sem hann sagði síðan um hallann á göngunum að menn mundu keyra hægar vegna hallans eða það mundi verða minni stytting á tíma vegna hallans, við því er það að segja að það er lítill halli í þessum göngum. Hann yrði 5--6° þannig að menn munu ekki upplifa sig í miklum halla þó þeir keyri þarna í gegnum þessi göng.
Ég vil fagna úr því að ég er hér í ræðustól yfirlýsingu ráðherrans áðan um þessi göng. Hann sagði skýrt og skorinort Akraborgin verði ekki lögð niður fyrr en göngin verða tekin í notkun.