Kostir þess að gera landið að einu kjördæmi

25. fundur
Fimmtudaginn 28. október 1993, kl. 13:48:24 (781)


[13:48]
     Björn Bjarnason (andsvar) :
    Frú forseti. Eins og fram hefur komið eru leiðirnar að markmiðunum sem menn setja sér mjög mismunandi og það er hægt að fara mismunandi leiðir og það er kannski frekar um útfærsluatriði heldur en pólitíska stafnumörkun.
    En varðandi það meginatriði sem samþykkt var á landsfundinum um jöfnun atkvæða þá geta menn kynnt sér ályktanir Sjálfstfl. fyrr um þetta mál og þá sjá þeir hve mikilvæg þessi ályktun var í því ljósi.