[14:11]
Einar K. Guðfinnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. 6. þm. Norðurl. e. sagði einhvern veginn á þá leið að forsendan fyrir að hægt væri að gera landið að einu kjördæmi væri sú að hluti af því valdi sem nú hefði safnast saman á Alþingi yrði fært til byggðanna. Nú væri mjög fróðlegt fyrir okkur aðra hv. þm. að vita hvað hv. 6. þm. Norðurl. e. á nákvæmlega við í þessum efnum. Á hann t.d. við að þær fyrirhuguðu breytingar, sem standa fyrir dyrum á skipan sveitarstjórnarmála í landinu og þau áform að færa til sveitarstjórnanna viðurhlutamikil verkefni upp á marga milljarða kr., séu nægjanleg forsenda fyrir því að gera landið að einu kjördæmi? Á hv. þm. við að það sé ástæða til að setja á hið svokallaða þriðja stjórnsýslustig eða hvað á hv. þm. nákvæmlega við? Ég held að það væri fróðlegt fyrir okkur að vita það og alveg nauðsynlegt til að halda áfram þessari umræðu. Því sé það svo að hv. þm. sé að tala um eitthvað enn þá róttækara en menn eru almennt með uppi á borðunum í þjóðfélaginu, þá er hann auðvitað að segja sem svo að þessi hugmynd hans um landið sem eitt kjördæmi sé mjög fjarlæg, einhvers staðar inni í blámóðu fjarskans, kannski einhvers staðar á næstu öld. Þó ég sé út af fyrir sig sammála um að það sé rétt að halda öllum leiðum opnum í umræðunni sjálfri, þá held ég að fyrir framgang þessarar þáltill. þá sé alveg bráðnauðsynlegt að hv. 1. flm. hennar tali hérna alveg skýrt og segi okkur nákvæmlega hvað hann eigi hér við, hvort við séum að tala um einhverja lauslega hugmynd sem sé efni hér til einhvers konar málfundaæfinga eða hvort hér sé um að ræða einhverja alvöruhugmynd sem hv. þm. hyggst fylgja eftir og fylgja þá væntanlega eftir með þeim nauðsynlegu breytingum sem hann vill gera á því valdakerfi sem er í þjóðfélaginu.