Kostir þess að gera landið að einu kjördæmi

25. fundur
Fimmtudaginn 28. október 1993, kl. 14:33:47 (803)

[14:33]
     Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
    Það var auðvitað strákslegt, hæstv. forseti, að vera að sýna þessa tómu örk hér og ég átta mig alveg á því. En það var svona undir áhrifum af því að hv. 1. flm. var að tala um að ég væri pirraður þannig að mig langaði til að vita hvernig hann mundi bregðast við ef ég svona laumaði þessu að honum. Ég held að ég verði að segja að mér fannst hann pirrast svolítið þegar ég benti á að þeir hefðu ekki farið út í frekari rökstuðning en raun ber vitni fyrir tillögunni.