[16:20]
Finnur Ingólfsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það kom fram í þessari ræðu hv. þm. Árna Mathiesens að hann er algerlega á móti því að gera landið að einu kjördæmi. En af hverju? Það kom ekki fram. Það eru engin rök, kostir og gallar hafa ekki verið skoðaðir í málinu. Þess vegna er það mikilvægt fyrir hvaða þingmann sem er að láta slíka könnun fara fram og af því að hv. þm. sakar mig og 1. flm. tillögunnar um að hafa ekki stefnu í málinu, þá er það einmitt það sem við viljum að fari fram, þ.e. umræða og það verði skoðaðir kostir og gallar þess að gera landið að einu kjördæmi. Þegar það liggur fyrir geta menn valið og hafnað en ekki að hafna áður en menn vita hvað í því felst eins og hv. þm. er nú búinn að gera.