[16:52]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég hef nú einmitt lesið þingskjalið og það stendur ekki í því að verkefnaflutningur sé forsenda breytinga á kjördæmaskipan. Það stendur nánast hið gagnstæða að þá breytingu geti menn gert án þess að hitt fylgi með, það er bara hlutur sem menn ætla að huga að. Það er ekki einu sinni að það sé fastar tengt saman en svo.
En vegna upphafsorða hv. þm. þá hlífði ég honum við því sem er auðvitað öllum ljóst sem fylgjast með í pólitík að hann sem 1. flm. er þingmaður Norðurl. e. Sú sjálfvirka breyting hefur orðið að það er búið að flytja hans þingsæti úr kjördæminu Norðurl. e. yfir á Reykn., þannig að auðvitað hefur hann áhuga á breytingu til að halda í sitt sæti. Ef hann á annað borð ætlar að færa umræðuna inn á það að menn horfi á málið út frá persónulegum hagsmunum þá ætti hann að varast það manna helst.