Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson) :
Virðulegi forseti. Svo sem kunnugt er hafa málefni Blindrabókasafnsins verið nokkuð til umfjöllunar að undanförnu. Skiptar skoðanir hafa verið á því, hvort nauðsynlegt væri að flytja safnið úr húsi Blindrafélagsins við Hamrahlíð í Reykjavík að Digranesvegi 5 í Kópavogi. Fyrir hvoru tveggja má að sjálfsögðu færa rök, að leyfa safninu að vera kyrru eða flytja það. Vegna þessa vil ég þó taka fram eftirfarandi:
Það er ljóst að fulltrúar blindra og sjónskertra, bæði í Blindrafélaginu og Öryrkjabandalaginu, telja að safnið komi blindum og sjónskertum verulega minna að gagni ef það verður flutt og sumir taka jafnvel það djúpt í árinni að segja að þetta yrði eyðilegging á starfi safnsins.
Í öðru lagi er bætt aðstaða og betra rými það sem forsvarsmenn Blindrabókasafnsins eru að sækjast eftir. Mín spurning er sú hvort fullreynt hafi verið hvort uppfylla mætti þessar kröfur, a.m.k. að verulegu leyti á þeim stað þar sem safnið er nú til húsa. Mér er m.a. kunnugt um að það hafa komið fram hugmyndir um það að koma verulega bættri aðstöðu á laggirnar innan þess húss og þá jafnvel á jarðhæð.
Í þriðja lagi er ljóst að flutningur safnsins er verulega kostnaðarsamur. Á sama tíma og verið er að skera niður eitt og annað þá er spurningin hvort það sé ástæða til þess að eyða verulegum fjármunum í þetta umdeilda verkefni. Mestu máli finnst mér þó skipta að mál sem þetta sé unnið í nánu samstarfi við notendur safnsins eða fulltrúa þeirra. Mér skilst að á þessu hafi orðið verulegur misbrestur að þessu sinni.
Sl. þriðjudag sendi Öryrkjabandalagið frá sér fréttatilkynningu um málið þar sem greint var frá ályktun aðalfundar Öryrkjabandalagsins og ég ætla, með leyfi forseta, að lesa þessa ályktun:
,,Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega þeirri síendurteknu tilhneigingu stjórnvalda, einstakra ráðherra og embættismanna, að taka ákvarðanir í mikilvægum málefnum fatlaðra án þess að hafa samráð eða samstarf við forustumenn öryrkja í viðkomandi málum samanber fyrirhugaðan flutning Blindrabókasafns Íslands úr Félags- og þjónustumiðstöð blindra og sjónskertra.``
Af þessu tilefni vil ég spyrja hæstv. menntmrh. eftirfarandi spurninga:
,,Hafa verið í gangi viðræður við Blindrafélagið og Öryrkjabandalagið um fyrirhugaðan flutning Blindrabókasafnsins úr húsi Blindrafélagsins? Ef svo er, í hvaða farvegi eru þær viðræður nú? Hefur öllum erindum aðila málsins verið svarað?``