[16:13]
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það með fyrirspyrjanda að það er mjög mikilvægt að það sé skipulega staðið að þessum könnunum og þær séu samræmdar. Ég vil einnig taka undir það að það er ófullnægjandi að einstök sveitarfélög láti sér nægja að taka einungis mið af biðlistum eða umsóknum sem berast. Félmrn. hefur fullan hug á að bæta úr þessu og í sumar óskuðum við eftir því við Húsnæðisstofnun að það yrði gerð spá um íbúða- og byggingaþörf allt fram til ársins 1998 og þar á meðal þörf á félagslegum íbúðum og það yrði gert alls staðar á landinu, sömuleiðis þróun á fasteignamarkaði og í byggingarstarfsemi.
Ég vænti þess að þessi könnun liggi fyrir fljótlega og það er alveg ljóst að tekið verður tillit til þeirrar niðurstöðu sem þar kemur fram við úthlutun á félagslegum íbúðum.