[16:22]
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sem vakir í máli fyrirspyrjanda hve mikilvægt það er að fækka barnaverndarnefndum og sameina þær þannig að þær geti betur sinnt sínu hlutverki m.a. með faglærðu fólki. Ég hygg einnig að ástæða til þess að ekki hefur verið brugðist við með þeim hætti sem ráðuneytið óskaði eftir í janúar sl. að um kjörtímabil barnaverndarnefndar er ekki að finna ákvæði í lögum um vernd barna og ungmenna. Meginreglan er sú að kjörtímabil nefnda á vegum sveitarfélaga skal vera það sama og kjörtímabil sveitarstjórnar og barnaverndarnefndir þær sem hreppsnefndir kusu vorið 1990 halda því umboði sínu þar til kosning sameiginlegrar barnaverndarnefndar hefur farið fram en umboð þeirra rennur út í síðasta lagi við næstu sveitarstjórnarkosningar sem fram munu fara vorið 1994. Þannig að í raun og sanni samkvæmt orðanna hljóðan í lögunum þá hafa þau þennan tíma fram að sveitarstjórnarkosningunum á næsta ári þó að ráðuneytið hafi ítrekað að það teldi brýnt að þetta yrði gert fyrr þar sem því væri við komið. En ráðuneytið mun ítreka frekar við sveitarstjórnir og hreppsnefndir að þessu brýna máli samkvæmt lögum verði sinnt.