[16:38]
Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson) :
Virðulegi forseti. Svo sem fram kom í svari hæstv. ráðherra þá eru það afskaplega fá sveitarfélög sem eiga aðgang að þjónustu sérmenntaðs starfsfólks og því er þarna enn þá pottur brotinn. Ég tek undir orð hv. seinasta ræðumanns að við væntum þess að hæstv. ráðherra taki þarna myndarlega á málum. Ég efast ekki um hug hennar í því efni.
En það er alveg augljóst líka á því sem fram kom í máli hæstv. ráðherra að þetta veldur því m.a. að þetta starf verður óskipulegt og ber stundum e.t.v. vott um að barnaverndarfólk úti um allt land sé nokkuð ráðvillt í sínu starfi, það er kannski að leita með smærri mál til ráðuneytis heldur en ástæða er til í stað þess að eiga kost á faglegri ráðgjöf nær sér. Ég sé ekki að þetta verði leyst nema með markvissri sameiningu barnaverndarnefnda og ég brýni enn hæstv. ráðherra að þarna muni félmrn. koma inn í ef venjuleg tilmæli bera ekki árangur. Ég skal ekki segja til um hvað sé heppilegast en ég held að þetta sé slíkt réttindamál fyrir börnin í landinu, foreldrana og í rauninni fyrir okkur öll að það verði ekki undan því vikist að taka myndarlega á þessu.
Ég vil vekja athygli á því að í Noregi hefur verið gert mjög myndarlegt átak í barnaverndarmálum og því fylgdu umtalsverðir fjármunir. Að sjálfsögðu hefði það þurft að gerast líka hér á landi þegar málaflokkurinn var fluttur á milli ráðuneyta.