Tilflutningur sýslumannsembætta

27. fundur
Mánudaginn 01. nóvember 1993, kl. 17:21:03 (941)


[17:21]
     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Það blasir við að hér hefur verið fylgt leikreglum ríkisstjórnarinnar og anað af stað án þess að athuga það sem verið er að gera. Mér hefði þótt eðlilegt að þetta mál hefði verið fyrst flutt í því formi að það kæmi inn í þingið og allshn. fengi að fjalla um þetta mál með rökrænum hætti. Ég hef litla trú á því að það sé eðlilegur farvegur fyrir svona mál að fara í gegnum fjárveitinganefnd eða að fara í gegnum embættislið dómsmrn. sem mér virðist telja vitlegast að viðhafa þær leikreglur í niðurskurði að skera niður það sem fjærst þeim er.