Tilflutningur sýslumannsembætta

27. fundur
Mánudaginn 01. nóvember 1993, kl. 17:24:00 (943)

[17:24]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég held að þau svör sem komu við þessari fsp. sanni að það hefur verið flanað í þessar aðgerðir án þess að undirbúa þær. Það sannar það eitt að þessi aðgerð eða þessi áform þarf að skoða mjög vandlega, m.a. í fjárln. Það er rétt hjá hv. 2. þm. Vestf. að þetta er ekki eina dæmið um vanhugsaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, síður en svo, því þar rekur sig eitt á annars horn og er dregið til baka á morgun það sem var ákveðið í gær, samanber heilbrigðismálin. Þetta er mál af þeim toga.