[15:54]
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst þegar hlustað er á málflutning hv. 2. þm. Austurl. og hv. 4. þm. Norðurl. e. að þeir leggja mikla áherslu á það að frv. um húsaleigubætur komi inn í þingið og nái fram að ganga og verði að lögum. En mér varð jafnframt hugsað til þess þegar ég sat undir þeirra ræðum að við værum alls ekki að ræða það mál hér. Ef samstaða hefði náðst um það þegar við sátum saman, þessir þrír flokkar, Alþfl., Sjálfstfl. og Framsfl., í ríkisstjórn þar sem var oft og iðulega rætt um húsaleigubætur og frv. náði þó ekki inn í þingið fyrr en nokkrum dögum áður en sú ríkisstjórn fór frá. En hefðum við nú náð samstöðu um það mál að koma á húsaleigubótum þegar þessir þrír flokkar gátu það og voru í ríkisstjórn, þá værum við ekki í þessari umræðu nú.
En mér fannst að þessir tveir þingmenn sem ég nefndi hefðu ekki dregið réttar ályktanir af ræðu minni áðan. Mér fannst mjög hlakka í þeim og þeir drógu þær ályktanir af mínu orðum að búið væri að salta frv. um húsaleigubætur. Það væri út af borðinu, dautt. Hér væri um vanefndir að ræða og fleira í þeim dúr kom fram hjá þessum þingmönnum. Ég tel alveg óþarfa að draga þessar ályktanir eins og þeir gerðu vegna þess að þær eru alls ekki réttar. Ég get fullvissað hv. þm. um að þetta frv. mun koma inn í þingið og ég tel enga ástæðu til að ætla annað en stjórnarflokkarnir nái niðurstöðu í þessu máli.