Húsaleigulög

28. fundur
Þriðjudaginn 02. nóvember 1993, kl. 16:00:30 (977)


[16:00]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Í tilefni af orðum síðasta ræðumanns og svartsýni hans og orðum um að Sjálfstfl. dragi lappirnar í þessu efni, þá vil ég minna hv. þm. á það að þegar við fjölluðum um húsbréfakerfið á sínum tíma var það marga mánuði ef ég man rétt til umfjöllunar í þingflokki Sjálfstfl. Framsfl. dró mjög lappirnar í því efni en það mál komst inn í þingið og komst í höfn í lokin og það sama mun gilda um þetta frv.