[16:01]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Mér endist nú ekki eitt andsvar ef ég ætti að rifja upp allt það sem gekk á í kringum þetta húsbréfakerfi. Mér er það í fersku minni. Ég var einn af þeim sem tóku það á sig að samþykkja það með öllum sínum kostum og göllum. Og ef Sjálfstfl. leggur eins að sér í þessu húsaleigubótamáli og ég gerði t.d. í þessu efni, þá þarf hæstv. félmrh. ekki að kvarta.