Vegalög

29. fundur
Miðvikudaginn 03. nóvember 1993, kl. 14:02:39 (1015)

[14:02]
     Guðni Ágústsson (andsvar) :
    Ég þakka hv. þm. undirtektir við ræðu mína og þá spurningu sem hann varpar hér fram er ég sáttur við. Ég er sannfærður um að við stöndum núna t.d. frammi fyrir því að mistök seinni ára, af því að það hefur ekki verið mótuð stefna um þetta mál, þau kosta okkur á þessu ári tugi milljóna. Þess vegna er ég sáttur við það að einhverjir fjármunir verði fluttir til þess að koma í veg fyrir að framtíðin þurfi að þola slík mistök.