[14:36]
Árni M. Mathiesen (andsvar) :
Hæstv. forseti. Eins og komið hefur fram hjá mér áður er það ekki á valdi fjárln. að skipta fé á vegáætlun á nokkurn hátt, það fer í gegnum samgn. og í gegnum kjördæmahópana. Ég hef því ekki möguleika til þess að hafa áhrif á það á þeim vettvangi að í þetta fari fjármunir sérstaklega. Mér þykir hins vegar leiðinlegt að hv. þm. Guðni Ágústsson kærir sig ekki um það að ég sé að spyrja hann eitthvað sérstaklega út úr hérna. Ég kann því ekkert illa þó hann sé með áskoranir í minn garð, að ég beiti mér fyrir hinu og þessu gagnvart samgrh., sérstaklega þegar það eru verk sem samgrh. hefur þegar hafið. Hann svaraði ekki spurningu minni um það hvort hann hefði beitt sér fyrir því þegar skipt var í hans kjördæmi að það færu sérstakir peningar í það að bæta úr þeim vandamálum sem varða reiðvegi og aðra umferð. Og án þess að ég sé að eigna mér það sérstaklega þá vil ég láta hann vita af því að í Reykjaneskjördæmi hafa þingmenn þar orðið ásáttir um það að setja þó nokkra peninga á yfirstandandi vegáætlun einmitt í þessi verkefni, þó það dugi langt frá því fullkomlega til þess að bæta úr öllum þeim vanda sem er hér á okkar svæði þar sem umferðin er náttúrlega langsamlega mest. En sem betur fer eru sveitarfélögin hér líka dugleg að vinna að þessum málum þannig að ástandið er nokkuð þolanlegt. Ég er næstum því viss um það að ef útlendingar sem kæmu á landsmótið á Hellu, sem er í kjördæmi hv. þm. Guðna Ágústssonar, ætluðu að ríða frá flugstöðinni og alla leiðina á Hellu þá ættu þeir greiðari leið um Reykjaneskjördæmi heldur en um Suðurlandskjördæmi.