Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

30. fundur
Fimmtudaginn 04. nóvember 1993, kl. 12:25:27 (1078)

[12:25]
     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni að þetta er auðvitað atriði sem þarf að athuga, að lögin séu nokkuð skýr hvað þetta varðar. Eins og hann kemur inn á þá er þetta ákaflega erfitt við að eiga vegna þeirrar stöðu sem við einfaldlega búum við nú þegar og hér hefur verið rakið varðandi olíufélögin og fleiri íslensk fyrirtæki sem tengjast erlendum aðilum mjög sterkt og við munum að sjálfsögðu skoða þetta í nefndinni.