[13:09]
Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég var nú einfaldlega fjarverandi síðustu þingdagana og með varamann inni fyrir mig, svo að mér gafst ekki kostur á að taka afstöðu til þess máls sem hv. þm. nefndi. Þó vil ég ekkert fullyrða svona eftir á hver sú afstaða hefði orðið, en auðvitað er það alveg ljóst í mínum huga að það eru hagsmunir íslensku þjóðarinnar að tryggja okkur frjálsan aðgang að erlendum mörkuðum fyrir okkar afurðir og að tryggja á sama hátt frjálsan aðgang að íslenskum markaði fyrir erlendar afurðir en þó þannig að við tökum ekki við slíkum innflutningi ef um niðurgreiðslur eða óeðlilega ríkisstyrki er að ræða heldur beitum þeim aðgerðum sem okkur eru heimilaðar og tiltækar við slíkar aðstæður.