Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Mér er nú ekki alveg ljóst hvað hv. þm. á við með einkasamtölum. Ég tel það ekki vera einkasamtöl þegar ég sem formaður Alþb. er að kynna formanni Framsfl. og forsrh. ákveðnar tillögur okkar, það eru ekki einkasamtöl í þeim skilningi sem ég legg í það orð heldur er það ákveðið ferli í ákvarðanatöku og samskiptum formlegra stofnana sem eru flokkarnir hér á Alþingi og var um formlega ákvörðun að ræða. Ég á ekki von á að neinn þeirra geri neina athugasemd við það þó ég greini þannig frá því. Ég hef reynt að virða það sem er einkasamtöl manna, að frá þeim sé ekki greint. En ég tel að það sem ég hef hér frá sagt sé ekki af því tagi. Það var um formlegan tillöguflutning og ósk af hálfu míns þingflokks að ræða.