Seðlabanki Íslands

30. fundur
Fimmtudaginn 04. nóvember 1993, kl. 14:57:38 (1109)

[14:57]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara í neinar deilur við hv. þm. um þetta atriði en þó hefur einhvern veginn myndast sú skoðun í mínum huga og ég reynt að vinna eftir henni að það sem maður fari með í ræðustól á Alþingi Íslendinga séu hlutir sem hafi komið fram í hinni opinberu umræðu annars staðar, inni í nefndum eða á fundum og menn haldi sig innan þeirra marka.