[16:44]
Gunnlaugur Stefánsson :
Hæstv. forseti. Ég er ekki viss um að hv. þm. Svavar Gestsson hafi heyrt ræðu mína er ég flutti hér áðan. Ef hann hefur heyrt hana, þá hef ég talað svo óskýrt að hann hefur misskilið hana. Ég trúi því ekki að hv. þm. Svavar Gestsson hafi verið andsnúinn því að Alþingi Íslendinga bæri ábyrgð á þeirri úttekt sem fram fór á fjármálalegum samskiptum Hrafns Gunnlaugssonar og opinberra stofnana. Ég trúi því ekki að hv. þm. Svavar Gestsson sé andsnúinn því eða ósammála því að fram fari endurskoðun, heildarendurskoðun á lögum um kvikmyndamál, svo og ákvæðum laga um Menningarsjóð útvarpsstöðva og við þá endurskoðun verði tekið tillit til upplýsinga og athugasemda sem fram koma í fyrrnefndri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Og ég trúi því ekki að hv. þm. Svavar Gestsson sé ósammála þeirri bókun sem kom fram í fjárln. í kjölfarið á umræðum um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Þetta voru efnisatriði máls míns og það kom ekkert efnislega fram í ræðu hv. þm. Svavars Gestssonar um það að hann væri ósammála þessum efnisatriðum. En hann gagnrýndi tal mitt almennt og þá verður svo að líta á að hann sé ósammála afstöðu minni hvað efnisatriði þessa máls snerta, að hann hafi verið ósammála því að þessi endurskoðun skyldi fara fram undir forræði þingsins, hann sé ósammála því að fram fari heildarendurskoðun á lögum um kvikmyndamál og ákvæðum laga um Menningarsjóð útvarpsstöðva og hann sé ósammála þeirri niðurstöðu sem varð í fjárln., dags. 8. júlí 1993, í kjölfarið í umræðum á þeirri úttekt sem Ríkisendurskoðun lét fara fram. Ég harma þessa afstöðu hv. þm. og ég trúi því ekki að þetta sé afstaða Alþb. og hann tali hér fyrir sinn eigin munn. ( SvG: Þetta er óheiðarlegur málflutningur.)