Vegasamband allt árið milli Austurlands og Norðurlands

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 17:47:58 (1185)

[17:47]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þó ég búi í fjalllendi þá tel ég ekki að ég sé að koma af fjöllum hér. Hins vegar erum við að ræða um veg yfir fjöll og samkvæmt greinargerðinni með þessari þáltill. þá segir að sá vegur sem liggi yfir fjöllin liggi á löngum köflum í óbyggðum í 500--650 m hæð. Þaðan hafði ég upplýsingar um það að vegurinn væri svona hár. Ég gerði ráð fyrir því að þetta væri rétt sem hér stæði í greinargerðinni.