Vegasamband allt árið milli Austurlands og Norðurlands

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 17:48:35 (1186)

[17:48]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það leiðréttist væntanlega heilmikill misskilningur við síðustu ræðu hv. 6. þm. Vestf. því það á ekki að leggja veginn í þeirri hæð sem um getur í greinargerð þál. heldur á að fara með hann í annarri og miklu minni hæð og þá vona ég að þessi misskilningur hjá hv. þm. sé leiðréttur.