Efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga

33. fundur
Fimmtudaginn 11. nóvember 1993, kl. 11:09:13 (1217)

[11:09]
     Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. hefur þann stíl að honum finnst jafnan að ræður allra þeirra sem ekki eru honum fyllilega sammála séu hálf aumingjalegar og lítilsigldar en ég verð að viðurkenna að mér þótti dálítið vælulegt talið hjá honum sl. vor þegar bráðabrigðalögin voru sett, kröfur hans um að kalla þing saman á þeim tíma.