Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það verður nú enn sérkennilegra þetta mál eftir því sem hæstv. forsrh. talar lengur. Hvað var forsrh. Íslands, Davíð Oddsson, að segja hér áðan? Hann var að tilkynna það að hann teldi það réttan skilning á síðasta úrskurði Kjaradóms að hver einasti einstaklingur sem heyrir undir Kjaradóm gæti framvísað yfirvinnureikningum og þeir yrðu greiddir. Það er ekki lítil yfirlýsing þegar nýlega hafa verið framlengdir kjarasamningar með óbreyttum kjörum í landinu, þegar forsrh. kemur nú með þann skilning sem ég vona að hann haldi ekki við, að þessi ákvörðun með hæstaréttardómarana feli það í sér að síðasti úrskurður Kjaradóms hafi opnað breiða braut fyrir alla þá sem heyra undir Kjaradóm, þingmenn, presta og fjölmarga aðra, að þeir geti bara framvísað yfirvinnureikningum og þá verði þeir greiddir. Það er rétt að maður trúi því að forsrh. Íslands hafi verið að gefa þær yfirlýsingar og þær skýringar hér á sinni afstöðu.
Auðvitað er það þannig að það skildu allir úrskurð Kjaradóms á þann veg og þegar bráðabirgðalögin voru staðfest hér á Alþingi að þar með væri verið að frysta launakjör þeirra einstaklinga sem heyrðu undir Kjaradóm þar til nýr úrskurður yrði kveðinn upp. Nú segir ráðherrann hins vegar þannig: Hæstaréttardómararnir voru ekki að notfæra sér smugu, nei. Það var búið að opna með almennum hætti á 100 þús. kr. launahækkun á mánuði í tilfelli hæstaréttardómaranna. Auðvitað skipta þá fastalaunin engu máli ef menn geta einfaldlega hækkað launakjör sín með þessum hætti án þess að breyta vinnuframlagi sínu eða neinu öðru. Það eina sem breytist er að launin hafa hækkað. Þessi skýring hæstv. forsrh., að þetta hafi verið sjálfsagt og eðlilegt og það geti hver og einn sem heyrir undir Kjaradóm tekið sér svona yfirvinnu, er því stórhættuleg yfirlýsing gagnvart launakerfinu í landinu og því jafnrétti sem hér á að ríkja.