Flutningur ríkisstofnana

36. fundur
Mánudaginn 15. nóvember 1993, kl. 15:28:32 (1304)


[15:28]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegur forseti. Í tilefni af orðum hv. 5. þm. Austurl., Gunnlaugs Stefánssonar, um ágæta skýrslu sem hér hefur verið lögð fram um þetta mál þá vil ég ekki draga úr því að sú skýrsla er á margan hátt mjög góð. En ég vil hins vegar beina því bæði til ríkisstjórnar og þings að menn hætti nú að búa til skýrslur um þetta mál og snúi sér að einhverjum framkvæmdum. Það er svo með þetta eins og margt annað að það vantar ekki skýrslurnar og það hvernig hæstv. ríkisstjórn hefur farið með þessa skýrslu bendir að mínu mati til þess að að einhverju leyti hafi átt að nota hana til þess að drepa málinu á dreif frekar en ýta undir framkvæmdir.