[15:42]
Einar K. Guðfinnsson :
Virðulegi forseti. Um leið og ég þakka hv. fyrirspyrjanda verð ég að harma þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í þessu máli. Ég bendi á að skýrslunni sem verið er að ræða um var lokið um miðjan apríl. Það eru sjö mánuðir eða svo sem mér telst til að liðnir séu frá því að skýrslunni var dreift og þangað til hún er núna rædd og formleg viðbrögð menntmrn. koma fram við henni. Ég mótmæli því jafnframt sem fram kemur í máli hæstv. menntmrh. að það skorti eitthvað á um ítarlega, faglega og fræðilega umfjöllun í þessu máli. Í þessari skýrslu er farið ítarlega, fræðilega og faglega ofan í þessi mál og leitað eftir áliti fólks sem gleggst þekkir til í mörgum fræðsluumdæmum. Þar ber allt að sama brunni, menn fjalla um þá hugmynd að setja upp þessa sérhæfðu skólastarfsemi í Reykjanesi og niðurstaðan er nær alls staðar sú að þetta sé skynsamlegt, þrátt fyrir að öllum sé kunnugt um þá skólastefnu sem hæstv. menntmrh. er að fjalla um.
Mér finnst undarlegt að nú fyrst, nærri sjö mánuðum eftir að skýrslunni er lokið, þá eigi að taka upp formlegar viðræður við sveitarstjórnarmenn. Þær viðræður hefðu átt að fara fram í sumar. Hæstv. menntmrh. hefði á þessu stigi átt að greina okkur frá niðurstöðum þeirra viðræðna en ekki að fara að segja okkur frá því að þetta standi til einhvern tímann í blámóðu framtíðarinnar.