[15:48]
Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
Hæstv. forseti. Ég á afar erfitt með að skilja þennan málflutning. Menn tala eins og það hafi ekkert verið litið á þessa skýrslu frá því að hún var afhent í aprílmánuði sl. Auðvitað hefur skýrslan verið rædd í menntmrn., hún hefur ekki verið rædd hér í þinginu vegna þess að það hefur ekkert sérstakt tækifæri gefist til þess fyrr en nú. Það er meginmálið.
Ég greindi frá því, sem allir eiga að vita, að framhaldsskólalögin eru í endurskoðun og ef þessi stefnumörkun er tekin núna þá er það mjög afdrifarík ákvörðun sem er ekki tekin á réttum tíma. Það á að taka hana um leið og framhaldsskólalögin eru tekin til afgreiðslu.
Ég vísa því alfarið á bug að það hafi verið einhver slæleg vinnubrögð í ráðuneytinu í meðferð þessa máls. Svo er ekki. Það hefur verið ítarlega rætt þar.
Hvað varðar það sem hv. þm. Páll Pétursson nefndi varðandi skólabúðirnar í Reykjaskóla í Hrútafirði, þá er það rétt sem hann sagði að það fyrirkomulag hefur gefist mjög vel og stendur ekki til að hætta því. Mönnum hefur auðvitað dottið í hug að það væri hægt að nýta húsakynnin í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp í hliðstæðum tilgangi, en það var ekki tillaga nefndarinnar sem ég fól að athuga þetta mál. Tillögur nefndarinnar ganga í allt aðra átt og það er það sem þarf að hyggja miklu betur að.
Ég sagði áðan að það mætti vel vera að í einhverjum tilvikum kynni að vera talið æskilegt að

stofna sérstaka skóla fyrir börn með hegðunarvandkvæði eða sem búa við erfiðar heimilisástæður og þá verður það athugað í samhengi við endurskoðun framhaldsskólalaganna.