Heilbrigðisráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) :
Virðulegi forseti. Sem svar við fyrri fsp. er þetta að segja:
Tryggingaráð hefur nýverið, raunar þann 15. okt. sl., sent ráðherra tillögur sínar af reglum um styrki til þeirra sem þurfa tannviðgerðir og tannréttingar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma, sbr. 18. gr. laga nr. 1/1992.
Eru tillögur tryggingaráðs til athugunar í ráðuneytinu og verður gengið frá staðfestingu þeirra bráðlega.
Hvað varðar annan liðinn, þegar spurt er eftir hvaða reglum hefur verið farið um mat á þátttöku
Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við tannréttingar sem hófust eftir 15. mars 1992, þá er því til að svara að eftir 15. mars 1992 hefur Tryggingastofnun ríkisins tekið þátt í greiðslu vegna tannréttinga í samræmi við ákvæði 6. gr. reglugerðar nr. 63/1991, þ.e. vegna afleiðinga meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma.
Í þeirri grein reglugerðarinnar eru sjúkdómseinkenni flokkuð í eina sex flokka og eftir þeim verklagsreglum hefur verið unnið. Ætla má að sú skilgreining verði grunnur þeirra reglna sem um gat í svari mínu við fyrri fsp.