[17:26]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Herra forseti. Það ætti ekki að þurfa að koma hv. þm. á óvart sú staðreynd að það liggja ekki fyrir vísindalegar sannanir um það hvaða áhrif friðunaraðgerðir á hrygningartíma hafa á klak þorsksins. Það hefur verið alkunnugt lengi. Hins vegar er það ljóst að ekki síst sjómenn hafa haft á því mikinn áhuga að stjórnvöld beiti sér fyrir friðunaraðgerðum, einkanlega yfir hrygningartímann vegna þess að það hefur verið almenn skoðun manna að það mundi bæta klakið og auka líkur á því að við fengjum sterka stofna.
Eins og fram kemur í þessu svari hefur Hafrannsóknastofnun talið að slíkar aðgerðir væru til góðs. En það liggja ekki fyrir vísindalegar sannanir um áhrif af þessu og það eru engin ný sannindi og ég hélt að hv. þm. vissu það áður.
Það er vissulega rétt að það hefði mátt hefja hér miklu fyrr víðtækar rannsóknir á þorskklaki en nú hefur verið tryggt að fjármagn er fyrir hendi til þess að sinna þeim rannsóknum og þær hafa farið fram og eru byrjaðar og ég vænti þess að þær munu skila niðurstöðum. Að öðru leyti get ég tekið undir það að auðvitað bíður fjöldi verkefna á þessu sviði en hér er þó þess að geta að það hefur verið ráðist í það að útvega fjármagn til þess að hefja rannsóknir á þorskklaki og þær eru auðvitað mjög mikilvægar og eitt mikilvægasta rannsóknarverkefnið sem við tökumst á við til þess að treysta betur þann þekkingargrunn sem liggur að baki nýtingarákvörðunum okkar.