Flutningur útibús Hafrannsóknastofnunar frá Ólafsvík

36. fundur
Mánudaginn 15. nóvember 1993, kl. 18:00:44 (1379)

[18:00]
     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill gjarnan taka fram að eins og fram kom í máli hv. ræðumanns þá hefur þingsköpum verið breytt og aflagt að fjalla um þingsköp með sama hætti og gert hefur verið á undanförnum þingum. Miðað við hans athugasemd hér í ræðustóli hefði verið réttara fyrir hann að biðja um orðið til þess að bera af sér sakir og hefði það umsvifalaust verið leyft en hann hefur komið sinni athugasemd á framfæri og ekkert frekar við það að athuga.