[17:46]
Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það má um það deila hvort ekki sé einhvers staðar að finna seli í ráðuneytum í dag. En að öllu gamni slepptu er það svo að staðan hefur verið þannig að málefni sela hafa verið eiginlega á mörkum tveggja ráðuneyta. Það mun vera hægt að segja að tvö ráðuneyti hafa gert tilkall til vistunar þeirra ef svo má að orði kveða, annars vegar landbrn. vegna þess að selir hafa tengst lax- og silungsveiðilögum og hins vegar sjútvrn. vegna þess að það er talið að þeir eigi verulegan þátt í tíðni hringorma í sjávarafla. Þess vegna er það svo að sjútvrn. hefur eðlilega viljað koma nálægt stjórn þessara stofna. En hins vegar vil ég ekki fullyrða, hv. þm., að selirnir séu komnir heim, en þeir eru kannski komnir nær sínum náttúrulegum heimkynnum.