[13:36]
Guðrún Helgadóttir :
Hæstv. forseti. Ég hef áður spurst fyrir um þetta mál vegna endurgreiðslna og úrskurða af öllu tagi. Nefna mætti greiðslugetu manna til að endurgreiða námslán og ýmislegt annað sem skiptir máli í þessu sambandi. Hér er auðvitað verkefni fyrir hæstv. fjmrh. Þegar lögin um staðgreiðslu skatta voru sett gengu menn ekki alla leið. Menn hafa ekki lengur tekjur sínar í eitt ár til ráðstöfunar eins og áður var. Ríflegan þriðjung tekna okkar sjáum við aldrei nema sem tölur á blaði. Það getur ekki verið sanngjarnt að miða endurgreiðslur til sjúklinga, sem hafa orðið að greiða á milli 50 og 100 þús. kr. í lyf og læknishjálp á hálfu ári, við tekjur þeirra, brúttótekjur, sem verulegur hluti af er þegar kominn í þá sömu sameiginlegu sjóði. Það er þess vegna sem ég er að vekja athygli á þessu, (Forseti hringir.) hæstv. forseti, og hér held ég að stjórnvöld verði að hreinsa til.