Seðlabankastjóri

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 13:39:29 (1464)

[13:39]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Eins og allir þingmenn vita hlýtur þetta að vera rangt því enginn maður hefur farið jafnmiklum viðurkenningarorðum um Jón Sigurðsson hér á Alþingi eins og hv. þm. Páll Pétursson, eins og allir vita. Eins og öllum er kunnugt þá er hv. þm. mjög kunnur á norrænum vettvangi enda hefur hann verið forseti Norðurlandaráðs tvívegis og því er mjög eðlilegt að norrænir aðilar sem þekkja mjög vel til hv. þm. taki mikið mark á hans orðum.